Markmið
MarkmiðSmella til að lesa
- Þróa hugmyndir: Ferli hugmyndavinnu verður tekið til umfjöllunar og gefin dæmi um aðferðir sem geta gagnast við að greina tækifæri, skipuleggja hugsanir sínar og móta hugmyndir.
- Setja markmið: Markmiðasetning felst í því að átta sig á hvert við stefnum og gera áætlun um hvernig við komumst á þangað. Í námsefninu eru gefin ráð um árangursríkra markmiðasetningu.
- Mæta hindrunum: Kynntar verða leiðir til að greina hindranir og gera áætlun um hvernig takast megi á við úrlausnarefnum sem upp kunna að koma.
Kynning
Óáþreifanlegur menningararfurSmella til að lesa
Menningarerfðir, sem flytjast frá kynslóð til kynslóðar, eru í stöðugri endursköpun í samfélögum og hópum fólks sem svar við umhverfinu og þáttur í viðbrögðum fólks við náttúrunni og sögunni, þær styrkja sjálfsmynd þess og tilfinningu fyrir sögulegri framvindu og stuðla þannig að virðingu fyrir menningarlegri fjölbreytni og sköpun
UNESCO
Frumkvöðlastarf og óáþreifanlegur menningararfurSmella til að lesa
Hvers vegna frumkvöðlastarf?
• Hlutur frumkvöðla er mikilvægt framlag til hagkerfisins.
• Hugvit og nýsköpun eru ótakmörkuð auðlind.
• Ný störf og verðmætasköpun.
• Styður við mörg af heimsmarkmiðum. Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun
|
|
Hvers vegna óáþreifanlegur menningararfur?
• Íslendingar eru meðal þeirra 180 þjóða sem eru aðilar að Samningi Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna um varðveislu menningarerfða.
• Eykur skilning og virðingu fyrir umhverfi og hefðum.
Hagrænn ávinningur.
• Jákvæð áhrif á sjálfsmynd og tengsl, til dæmis tengsl við svæði og samskipti fólks með ólíkan bakgrunn.
• „Hefðir lifa vegna þess að þeim er miðlað mann fram af manni“.
|
|
Arfleifðin er hluti af staðbundinni sjálfsmynd og menning er meðal drifkrafta sjálfbærrar þróunar. Með því að þróa starfsemi á þessu sviði er hægt að endurvekja gleymda svæðisbundna möguleika, með einstökum tækifærum í ferðaþjónustu, aukinni atvinnu og fleiri jákvæðum áhrifum á lífsgæði.
Vasile Valentina et al. / Procedia - Social and Behavioral Sciences 188 (2015) 16 – 26[þýðing NKC]
Að sjá fyrir sér framtíðina og greina tækifærin
Að sjá fyrir sér framtíðina og greina tækifærin Smella til að lesa
Hver eru tækifæri frumkvöðla á sviði óáþreifanlegs menningararfs?
Óáþreifanlegur menningararfur spannar vítt svið og er í sífelldri þróun.
Tækifærin leynast því víða!
I Hugmyndavinna: Kynning á ferli hugmyndavinnu sem leið til að móta framtíðarsýn.
I Að greina tækifæri: Að uppgötva og greina tækifæri.
I Markmiðasetning: Aðferðir við markmiðasetningu settar fram sem mikilvægur liður í að ná árangri.
I Persónulegir hæfniþættir: Eiginleikar sem má öðlast og tileinka sér til dæmis með fræðslu og reynslu.
HugmyndavinnaSmella til að lesa
Hugmyndavinna er ferli sem gengur út á kalla hugmyndir fram og vinna þær áfram, móta og þróa. Hugmynd er rýnd og reynt er að nálgast hana frá ólíkum sjónarhornum. Leitast er við að skoða allar hliðar málsins, jafnvel þær sem í fyrstu virðast ófyrirsjáanlegar.
Leggja má af stað með enga hugmynd, margar hugmyndir eða jafnvel hugmynd sem komin er á framkvæmdastig.
Fjölmargar leiðir eru færar til að þróa hugmyndir sínar. Aðferðir til hugmyndavinnu hafa verið þróaðar og prófaðar við margvíslegar aðstæður og geta átt misvel við ólík verkefni og ólíka einstaklinga.
Árangursríkt getur reynst að blanda saman aðferðum við þróun hugmynda!
|
|
Hugmyndavinna – dæmi um aðferðirSmella til að lesa
Þankahríð
Leið til að kalla fram hugmyndir. Aðferðinni má beita hvort sem er á eigin spýtur eða í hópi.
Gjarnan er mælt með þankahríð án áreitis frá tölvum og snjalltækjum. Árangursríkara getur reynst að skapa andrúmsloft og aðstæður sem opnað geta hugann og örvað hugsanir. Hvað með að setjast út undir bert loft með blað og penna?
|
Hugarkort
Hugarkort má teikna hvort sem er með penna og pappír eða þar til gerðu forriti. Með hugarkorti fær þróun hugmynda/r á sig sjónræna mynd og auðveldara verður að útfæra, flokka, tengja og skipuleggja hugsanir.
|
|
|
Stjarnan
Teiknuð er stjarna með sex anga.
Hugmyndin, sem unnið er með, er skrifuð í miðja stjörnuna. Spurnarorðum er svo deilt niður á anga stjörnunnar: hver, hvað, hvar, hvenær, hvers vegna og hvernig. Hugmyndin er síðan skoðuð í ljósi spurninga sem hefjast á framangreindum spurnarorðum.
|
6 hattar
Aðferð, úr smiðju Edward de Bono, til að bæta og skipuleggja hugsanir og ákvarðanatöku.
Hugmynd skoðuð á gagnrýninn hátt, frá ólíkum sjónarhornum, með því að „setja upp ólíka hatta“. Hver hattur táknar ákveðið sjónarhorn eða afstöðu: Jákvæðni, neikvæðni, upplýsingar, tilfinningar, sköpun, skipulag.
Þessari aðferð er einkum beitt í hópvinnu. Árangursríkast er að takmarka tímann sem hver einstaklingum ber hvern hatt og miða aðeins við örfáar mínútur.
|
Sviðsmyndir
Að líta til framtíðar felur ávallt í sér töluverð óvissu. Draga má upp sviðsmyndir sem varpa ljósi á mögulega stöðu í framtíðinni. Þannig er hægt að fá ákveðinn undirbúning fyrir þróun mála. Aðferðina má því líta á eins konar hermi fyrir framtíðina!
Þegar framtíðin er teiknuð upp í formi sviðsmynda er mögulegt að taka tillit til margvíslegra þátta svo sem breytinga á viðskiptahegðun eða náttúru.
Vinnu með sviðsmyndir má útfæra eftir ólíkum áherslum til dæmis með því að einbeita sér að annað hvort greiningu eða spá. Á heildina litið er öll vinna með sviðsmyndir þó aðferð til stefnumótunar sem getur verið mjög gagnleg þegar gerðar eru langtímaáætlanir sem leyfa sveigjanleika.
|
Greina tækifæriSmella til að lesa
Hvort sem nýju verkefni er komið af stað eða unnið að þróun eða aðlögun starfsemi sem þegar er í rekstri hefur mikið að segja að frumkvöðlar geti greint og metið tækifæri. Líklega eru möguleikar á sviði óáþreifanlegs menningararfs nánast óþrjótandi.
En hvernig greinum við tækifæri?
Að greina tækifæri er ferli sem má æfa og bæta. Hafa ber í huga að um að ræða viðvarandi ferli sem á við á öllum stigum í frumkvöðlastarfsemi. Margvíslegar aðferðir, viðmið og leiðbeiningar geta hjálpað til við að greina tækifæri! Leiðir sem skoða margþættar hliðar sem skipta máli í innra og ytra umhverfi starfsemi geta verið mjög gagnlegar í þessu ljósi.
Þegar leitað er að tækifærum...
...rannsakaðu, kannaðu og safnaðu upplýsingum um markaðinn.
...vertu vakandi fyrir nýjum upplýsingum um þróun markaða.
...horfðu eftir vöntun á markaði.
...veltu fyrir þér hvernig þú getur uppgötvað tækifæri og búðu þau til!
Greina tækifæri – dæmi um aðferðirSmella til að lesa
Mat á markaðstækifærum
Mat á markaðstækifærum getur verið gagnlegt fyrir allar gerðir fyrirtækja og stofnana. Aðferðinni má beita á ýmsan máta og hægt að finna leiðbeiningar um ólíkar útfærslur. Helsti tilgangur þessa mats er að rýna nokkra lykilþætti í starfseminni til dæmis með því að gera nákvæma rannsókn á viðskiptavinum, samkeppni, viðskiptaumhverfi og markaðinum almennt.
Mat á markaðstækifærum getur falið í sér að ólíkum aðferðum sé beitt. Að framkvæma PESTLE eða SVÓT greiningu getur þannig verið hluti af ítarlegu mati á markaðstækifærum.
|
PESTLE greining
Stefnumörkun til að greina sex þætti í ytra umhverfi fyrirtækis eða stofnunar. Greiningin varpar ljósi á veigamikla og óviðráðanlega ytri þætti: pólitík, efnahag, samfélag, tækni, umhverfi og lög.
Aðferðina má aðlaga að ólíkum þörfum og aðstæðum. Í sumum tilfellum gæti til að mynda verið gagnlegt að skoða hvern þátt í landfræðilegu samhengi og vinna greininguna staðbundið, á landsvísu og fyrir útflutning.
|
|
|
SVÓT
Aðferð til greiningar þar sem styrkleikar og veikleikar í innra umhverfi eru greindir, ásamt ógnunum og tækifærum í ytra umhverfi.
SVÓT er dæmi um aðferð til stefnumótunar.
|
Ansoff líkan
Ansoff líkanið er ein helsta og mest notaða aðferðin til að greina og skipuleggja vöxt. Líkanið sýnir fjórar leiðir til vaxtar fyrirtækis og gerir kleift að meta áhættu í sambandi við hverja leið.
Betri skilningur fæst með því að rýna alla þætti líkansins: markaðsþróun, markaðssókn, ný starfsemi og vöruþróun.
|
|
Sterkari saman
Leiðir til að greina tækifæri beinast oft að gildi samstarfs og samskipta. Margvísleg tengsl eru grundvallaratriði þegar unnin er greining á ólíkum hliðum markaða svo sem væntingum viðskiptavina, helstu samkeppnisaðilum og dreifileiðum.
Í gegnum samskipti og sambönd má afla traustrar þekkingar og fá innsýn í þróun á vettvangi frumkvöðulsins. Mikilvægt er að fylgjast vel með stefnum og straumum á viðkomandi sviði og má benda á lestur fagtímarita, frétta og tilkynninga sem vænlega leið.
|
MarkmiðasetningSmella til að lesa
|
• Skilgreina þarf hvert markmiðið er.
• Markmið eiga að vera skýr, greinileg, raunhæf og mælanleg.
• Setja fókus á markmiðið og halda þeim fókus.
• Móta stefnu út frá markmiðinu og gera áætlun um hvernig markmiðinu verður náð.
• Áætlunin, sem markar leiðina að markmiðinu, ætti að fela í sér sem mestan hvata til dæmis með vel afmörkuðum verkþáttum eða örmarkmiðum. Ánægjan yfir að ljúka hverjum áfanga felur í sér hvata.
|
Markmiðslýsing (e. Mission Statement)
Markmiðslýsing skýrir tilgang starfsemi, sviðs eða skipulagsheildar. Í lýsingunni kemur fram í stuttu máli af hverju sviðið/skipulagsheildin er til og hvaða árangri starfsemin á að ná. Markmiðalýsing inniheldur bæði lýsingu á hlutverki og meginmarkmiðum.
Framtíðarsýn (e. Vision Statement)
“Framtíðarsýn er almenn lýsing á þeim árangri eða ávinningi sem ætlað er að ná fram innan ótilgreinds tíma eða með framkvæmd stefnu. Tilgangur framtíðarsýnar er að styrkja grundvöll ákvarðana um markmið og hlutverk í starfsemi til skemmri og lengri tíma. Almennt er gert ráð fyrir að framtíðarsýn sé einföld, skýr, feli í sér áskoranir og viðmið til lengri tíma, byggi á stöðugum forsendum og sé hvetjandi fyrir starfsfólk og aðra hlutaðeigandi.”
Markmiðasetning – dæmi um aðferðirSmella til að lesa
SMART
Aðferðin leggur til fimm orð sem eiga að einkenna markmið. Samkvæmt aðferðinni á markmið að vera sértækt, mælanlegt, aðgengilegt, raunhæft og tímasett.
|
|
Eitt orð
Sú staða getur komið upp að umgjörð, aðstæður og aðrir þættir verða of fyrirferðarmiklir svo erfitt reynist að greina markmið. Með því að einblína á eitt orð og útiloka annað áreiti má beina kastljósinu að kjarna málsins: sjálfu markmiðinu.
|
|
Fimm meginreglur Locke og Latham um markmiðasetningu
Locke og Latham eru meðal virtustu rannsakenda á sviði markmiðasetningar. Rannsóknir þeirra hafa bent til þess að markmiðasetning er mikilvægur þáttur í að bæta frammistöðu og ná auknum árangri. Samkvæmt rannsóknunum styður markmiðasetning við hvata í umhverfi fólks og leiðir þannig til virkrar hvatningar.
Locke og Latham hafa skilgreint fimm meginreglur sem skila árangursríkri markmiðasetningu. Þessar reglur snúast um skýrleika, áskorun, skuldbindingu, endurgjöf og flækjustig.
|
Markmiðasetning afturábak
Aðferðin gengur út á að nýta markmiðið sjálft til að varða leiðina að því. Með því að ímynda sér að markmiðinu sé náð, má einnig ímynda sér hvað varð til þess að árangur náðist. Þannig er hægt að sjá fyrir sér leiðina að markmiðinu og teikna upp áætlun út frá þeirri sýn.
|
Myndræn framsetning
Myndræn framsetning markmiða stuðlar að skýrri sýn. Aðferðin gengur út á að gera markmið sýnileg og auðvelda fólki þannig að halda fókus. Þetta má útfæra á afar fjölbreyttan máta til dæmis með því að skrifa markmið upp og setja í ramma, teikna mynd eða gera myndband.
|
Persónulegir hæfniþættirSmella til að lesa
Til viðbótar við þekktar aðferðir og verkfæri, sem geta aukið ávinning af hugmyndavinnu og markmiðasetningu, hafa persónulegir eiginleikar frumkvöðulsins einnig mikið að segja.
Færniþættir eru sjaldnast fastir eða óhagganlegir hjá einstaklingum,
þvert á móti þróast þeir og breytast.
Eiginleika af þessum toga má því öðlast og tileinka sér
til dæmis í gegnum fræðslu og reynslu.
Að sigrast á áskorunum
Að sigrast á áskorunumSmella til að lesa
Hvernig má sigrast á þeim áskorunum sem kunna að koma upp?
Ýmsar aðferðir geta reynst gagnlegar þegar áskorunum er mætt.
Mikilvægt er að þekkja til slíkra leiða áður en staðið er frammi fyrir flóknum úrlausnarefnum.
I Mögulegar áskoranir: Greint frá áskorunum sem kunna að verða á vegi frumkvöðla á sviði óáþreifanlegs menningararfs.
I Úrræði: Ljósi varpað á úrræði sem mikilvægt er að þekkja til þegar staðið er frammi fyrir áskorunum.
Áskoranir – gott að vitaSmella til að lesa
Úrræði og stuðningur
• Hvar og með hvaða hætti er mögulegt að fá aðstoð? Hvert má snúa sér til dæmi vegna spurninga um tækni, lög og reglur eða bókhald?
• Uppfyllir verkefnið skilyrði til umsókna í styrktarsjóði?
• Hvaða dyr gætu opnast með samstarfi?
Vertu vakandi fyrir tækifærum sem bjóðast um ráðleggingar eða
aðstoð fyrir verkefni þitt! Stuðning og faglega ráðgjöf má
nálgast víða, ýmist ókeypis eða gegn gjaldi.
Mögulegar áskoranir frumkvöðla á sviði óáþreifanlegs menningararfsSmella til að lesa
Frumkvöðlar geta átt von á að mæta ákveðnum áskorunum. Til viðbótar geta frumkvöðlar á sviði óáþreifanlegs menningararfs staðið frammi fyrir sértækari áskorunum sem tengjast viðfangsefni þeirra:
• Miðlun menningararfs getur verið háð breytum sem erfitt er að spá fyrir um til dæmis vegna tækniþróunar og breytinga á ferðahegðun.
• Störf frumkvöðla geta krafist þolinmæði með tilliti til arðsemi reksturs.
• Upp getur komið ágreiningur um nýtingu á menningararfi.
• Lagarammar og regluverk geta sett skorður.
• Er nýting menningararfsins sjálfbær?
Áskoranir – dæmi um úrræðiSmella til að lesa
Styrkir og fjármögnun
Frumkvöðlar geta í mörgum tilfellum sótt um styrki vegna verkefna sinna í innlenda, erlenda sjóði.
Í þessu ljósi er einnig vert að minna á mikilvægi þess að þekkja réttindi hjá stéttarfélögum, skattaumhverfi frumkvöðla
og svo framvegis.
Ráðgjöf
Frumkvöðlar geta víða leitað ráðgjafar, meðal annars vegna uppbyggingar fyrirtækis, skattamála og annars sem varðar rekstur. Einnig er vert að minnast á gildi þess að leita ráðgjafar á sérsviði frumkvöðla, í þessu tilfelli á sviði óáþreifanlegs menningararfs. Slíka ráðgjöf má í mörgum tilfellum fá hjá fagstofnunum og -samtökum.
Tengslanet
Rannsóknir á framgangi í frumkvöðlastarfi um óáþreifanlegan menningararf leiða gjarnan í ljós mikilvægi tengslanets. Tengsl geta verið á ýmsum skala og með ólíku sniði, svo sem þátttaka í samstarfsverkefnum, málstofum eða ráðstefnum, innan héraðs eða í alþjóðlegu samhengi.
Persónuleg hæfni
Eiginleikar sem stundum eru kallaðir mjúkir færniþættir. Margvíslegir færniþættir geta aðstoðað við að leysa úr málum sem upp geta komið. Þekking, útsjónarsemi og þolinmæði eru dæmi um slíka færniþætti.
Samantekt
SamantektSmella til að lesa
|