|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
MARKMIÐ MARKMIÐSmella til að lesa
Stutt kynning á DigComp 2.1 DigComp 2.1: Hvaða nýtingarmöguleikar eru í boði?Smella til að lesa
Eftirfarandi efni varpar ljósi á Samskipti með stafrænni tækni, þjálfun og hæfni sem talin voru sérlega mikilvæg út frá þarfagreiningu sem framkvæmd var í fyrsta verkhluta NICHE. Efni sem fjallar um það hvernig auka megi færni sína í stafrænni tækni flæðir yfir veraldarvefinn, um fjarvinnu, samskipti og samstarf. En út frá samhengi þessa þjálfunarhluta verður okkar helsta heimild nýjusta útgáfa Digital Competence Framework for Citizens sem gefin var út af Sameiginlegri Rannsóknarmiðstöð framkvæmdastjórnar ESB (EU Commission’s Joint Research Centre) árið 2016. Nánar tiltekið, við munum fjalla um 2. hluta Samstarf og samvinna (Communication and Collaboration), sem snýr að samskiptum í gegnum stafræna tækni. Opinberi Evrópski viðmiðunarrammi fyrir þjálfun og kennslu í stafrænni færniSmella til að lesa
Fyrsti DigComp viðmiðunarramminn kom út árið 2013. Nýjasta útgáfa hans er DigComp 2.1, en ný útgáfa DigComp 2.2 kemur út árið 2022. DigComp 2.1 tekur fyrir 21 stafræna hæfni sem dreifist milli 5 hæfni (“þjálfun”). Fyrir hverja einstaka hæfni er 8-laga hæfniþættir sem notendur/leiðbeinendur geta nýtt til að fylgja eftir framförum í tiltekinni hæfni. DigComp Smella til að lesa
Samskipta- og samstarfsstoðir DigComp þjálfunarsvið nr. 2 Smella til að lesa
Samskipta- og samstarfsstoðum er skipt niður í eftirfarandi hæfniviðmið:
Source: DigComp 2.1, page 11
DigComp nr. 2.1Smella til að lesa
Eins og við sjáum, eru öll sex hæfniviðmiðin á hæfnisviði nr. 2 mjög tengd hvert öðru: • Að deila, taka þátt í og eiga í samstarfi væri ekki möguleiki án þess að eiga fyrst í samskiptum gegnum stafræna miðla
• Netsiðir hjálpa þér að stjórna (og birta) stafrænt fótspor
• Ofl.
Með öðrum orðum, meðal þessara hæfniviðmiða er engin skýr forgangsröðun heldur gagnkvæm áhrif, þannig að þegar þú styrkir hæfni þína innan eins viðmiðs, styrkist þú í öllum hinum líka. Með DigComp 2.1 fylgdi mjög skýrt framvindulíkan sem hjálpar notendum að öðlast betri meðvitund um eigin getu og þekkingu. Samskipti gegnum stafræna miðla Smella til að lesa
Góðar starfsvenjur í samskiptum gegnum stafræna tækni Úrræði og viðbótarráðleggingar til að eiga samskipti gegnum stafræna miðlaSmella til að lesa
Fyrst og fremst er mikilvægt að skilja og vera meðvitaður um við hverja stofnunin þín á í samskiptum og á hvaða forsendum… Hæfnin til að umskrá stafræn gögn og upplýsingar er mikilvæg, að rata um hið stafræna vistkerfi og móta langtímasýn stofnunarinnar í samræmi við það. Mikilvægasta vinnan eru nú að fullu gagnadrifin: fjármál, sölumál og auglýsingar treysta á samskipti á vefnum, inntak og innsýn, auk fjölda annarra mælikvarða til meta, stýra og mæla getu stofnunarinnar og hvernig hún er metin af (mögulegum) viðskiptavinum.
Til dæmis, fyrir vörumerki: Vegvísar samskipta á netinuSmella til að lesa
leiðir til að meta árangur
Haltu skrá yfir árangur þinn í samskiptum og tengslum við hvern skilgreindan hóp hagaðila: hvert er núverandi (C) stig þátttöku, samanborið við (D) óskastöðu?
Leiðir að markhópum
Leiðir að ólíkum hópum
Samskipti og samskipti í gegnum stafræna tækniSmella til að lesa
Léleg samskipti leiða af sérSmella til að lesa
Að setja viðmið fyrir samskipti á netinu: NetsiðirSmella til að lesa
1. Að skrifa og taka á móti tölvupósti er orðið hluti daglegs lífs. Ekki gleyma að fylgja nokkrum (net)siðareglum til að tölvupósturinn verði áhrifaríkari og skýrari.
2. Gerðu skýra efnislínu (Subject): Gaktu úr skugga um að efnislínan sé einföld, nákvæm og grípandi
3. Byrjaðu tölvupóstinn á að heilsa
4. Vertu skýr og námkvæm/ur: sparaðu tíma annarra!
5. Óformlegt eða formlegt: veldu samskiptastíl þinn eftir því hver viðtakandinn er
6. Notaðu viðhengi (ef þarf), en útskýrðu vel hvað þau innihalda og á hvers konar formi þau eru
7. Ekki vera hrædd/ur við að færa slæmar fréttir: reyndu að bjóða lausnir eftir að hafa útskýrt málið á skýran hátt
8. Skrifaðu niðurlag í tölvupóstinn: veldu setningu sem hentar vel áður en þú skrifar nafnið þitt
9. Lestu aftur yfir tölvupóstinn áður en þú sendir: hægt er að koma í veg fyrir flest mistök eða innsláttarvillur með því að lesa vandlega yfir með augun opin fyrir smáatriðum
óvandaður/lélegur tölvupóstur...
...vandaður tölvupóstur
Að auki Hvernig blandar þú saman frumkvöðlastarfi og menningararfi? Með því að vera með stafræna sérstöðu.Smella til að lesa
Á eftirfarandi glærum munum við kynna fyrir lesendum góðar venjur sem sýna hvernig frumkvöðlar og stofnanir sem starfa á sviði menningararfs geta mótað og hannað (vef) samskiptaáætlanir sínar og stafræna sérstöðu. Með því er hægt að auka virði þeirra vöru og þjónustu sem þau bjóða en byggja á kynningu og varðveislu hins óáþreifanlega menningararfs. Sveitabæir í Evrópu standa fyrir öflugri framleiðslu með mikla möguleika til að samþætta og beina athygli að staðbundinni menningararfleifð og landbúnaðarmatarhefð. (Vef) samskipti þeirra eru yfirleitt mjög viðeigandi fyrir yfirgnæfandi meirihluta almennings á netinu og nýta sér vandaða kynningu á „áhrifaríkri upplifun“ frekar en vöru og/eða þjónustu...
Létt, einföld og notendavæn Vefsíða Madonna degli Angeli’s passar fullkomlega við þessa lýsingu: heildarútlit vefsíðunnar tekur á móti notendum með leiðandi og hlýlegu skipulagi. Frá fyrstu sýn geta notendur fengið aðgang að öllum upplýsingum sem þeir þurfa: frá gistiaðstöðu til náttúru staðarins.
“Upplifunar” formúlanSmella til að lesa
Mörg samtök og fyrirtæki starfa á sviði menningararfs. Sveitabæir þurfa ekki að takmarka sig við að vera hefðbundnir gististaðir. Þeir geta boðið upp á umhverfi sem tekur vel á móti fólki en er áfram hluti af því landslagi og menningu sem þeir tilheyra. Þetta gerir fólki kleift að komast út úr og hvíla sig á borgarlífinu. Í þessu tilviki verða samskiptastoðirnar upplifun friðsældar sem íbúar „í borginni“ leita oft eftir, fjarri daglegum venjum sínum í umferðinni, fundum og annarri vinnu. Til þess að fá jákvæðar niðurstöður í umsögnum og hollustu viðskiptavina er hlutverk eiganda fyrirtækisins sem menningarmiðlara afar mikilvægt. Þar er aðili sem getur tengst gestum sínum með því að miðla bæði áreiðanlegri frásögn og ástríðu. Þannig er umhverfið og gistihúsið sett í samhengi og eigandinn byggir upp einstakt “vörumerki” sem skilgreinir það sameiginlega. Ferðamönnum bjóðast afar fjölbreyttar og samþættar upplifunarleiðir sem auka gæði heimsóknarinnar og einkennir dvölina og hvetur þannig ferðamanninn til að dvelja í nokkra daga, frekar en aðeins yfir helgar.
|
Sjálfsmat!
Dæmisögur sem tengjast efninu:Lýsing:
Betri færni í upplýsingatækniverkfærum og kerfum til að bera kennsl á hagsmunaaðila og þátttöku í stafrænu umhverfi
Lykilorð
Stafræm hæfni, Samskipti, Samstarf, DigComp, Upplýsinga(- og samskipta) tækni, Þátttaka hagaðila
Markmið:
• Að kynna sér Evrópska viðmiðunarrammann um starfræna hæfni
• Að skilja mikilvægi samstarfs og samvinnu þegar kemur að upplýsingatækni
• Að öðlast góðar starfsvenjur fyrir teymisstjórnun og þátttöku hagaðila í stafrænu samhengi
Heimildaskrá